Hlutverk og framtíðarsýn
Lög félagsins
1.gr.
Félagið heitir Lokbrá - Félag fólks með drómasýki
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er að Rauðavað 1, 110 Reykjavík
3. gr.
Tilgangur félagsins er að vinna að velferð þeirra sem haldnir eru Drómasýki.
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að veita þeim sem haldnir eru Drómasýki og aðstandendum þeirra stuðning og stuðla að öflugri félags- og fræðslustarsemi.
5. gr.
Félagsaðild, fólk með Drómasýki, aðstandendur þess og aðrir sem áhuga hafa á málefnum félagsins.
6. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
7. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. apríl ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar lögð fram
Reikningar lagðir fram til samþykktar
Lagabreytingar
Ákvörðun félagsgjalds
Kosning stjórnar
Önnur mál
8.gr.
Stjórn félagsins skal skipuð formanni og 2 meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
9.gr.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt árlega.
10. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til fræðslu og gerð fræðsluefnis.
11. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til Öryrkjabandalag Íslands.
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi
Dagsetning: 19.06.2018